« Má ríkið eiga RÚV? | Aðalsíða | Bara kannski »
8. apríl 2005
Lions
Það sem félagshyggjumönnum finnst yfirleitt erfiðast að samþykkja við frjálshyggjuna er afnám opinbers velferðarkerfis. Hvað verður um þá sem minna mega sín í útópíu frjálshyggjumanna?
Fæstir vilja sjá fólk svelta eða missa af tækifærum til að bæta líf sitt vegna stöðu sinnar. Þar eru frjálshyggjumenn engin undantekning og við trúum á góðvilja þeirra sem standa betur. Þeir efnameiri munu leggja sitt af mörkum til fátækra, jafnvel án hótana um ofbeldi.
Fyrir þá sem efast um þessa fullyrðingu er skemmtilegt að benda á dæmi úr íslenskum raunveruleika í dag: Lions hreyfinguna þar sem um 2500 manns starfa.

Af vef Lions á Íslandi www.lions.is:
Lionsklúbbarnir eru samtök, sem eru óháð stjórnmálaflokkum og trúmálafélögum, en inna af hendi ýmiss konar þjónustu á sviði líknar- og mannúðarmála. Þeir eru skipaðir athafnasömu og félagssinnuðu fólki.Meðal sameiginlegra verkefna Lionshreyfingarinnar á Íslandi má m. a. nefna: Medic Alert, unglingaskipti, vímuvarnir-Lions Quest, sjónvernd, Orkester Norden o. fl.
Íslenskir Lionsfélagar sinna ungum sem öldnum, sjúkum, sjóndöprum og fötluðum. Einnig ýmsum verkefnum tengdum umhverfismálum, skólamálum og menningu.
Lionsmenn gefa tíma sinn og umhyggju eða afla fjár m.a. til tækjakaupa eða fjárstuðnings til þeirra sem minna mega sín.
Markmið Lionsklúbba
1 Að virkja og efla anda skilnings meðal þjóða heims.
2 Að efla meginreglur heilbrigðs stjórnarfars og borgaralegra dyggða.
3 Að starfa af áhuga að aukinni velferð byggðarlagsins og á sviði félagsmála, menningar og almenns siðgæðis.
4 Að tengja klúbbana böndum vináttu, góðs félagsanda og gagnkvæms skilnings.
5 Að skapa vettvang fyrir frjálsar umræður um öll málefni, sem almenning varðar, að því undanskildu að ekki séu rædd meðal klúbbfélaga málefni stjórnarflokka né heldur sértrúarhópa.
6 Að hvetja félagslynda menn og konur til að þjóna byggðarlagi sínu án persónulegs ávinnings og hvetja til dugnaðar og eflingar siðgæðis í viðskiptum, iðnaði, opinberri starfssemi og einkarekstri.
Hulda Sigrún Haraldsdóttir kl. 14:09