« Fækkum blaðurstundunum á Alþingi | Aðalsíða | Hræsnin á Alþingi »

4. apríl 2005

Kyrgizstan bætist í hópinn

Nú þegar Askar Akayev hefur formlega sagt af sér forsetaembætti í Kyrgizstan er það ríki komið í hóp þeirra fyrrverandi sovétlýðvelda sem hafa að undanförnu verið að losa sig við valdaklíku kommúnista.

Úkraína og Georgía hafa losað sig við hina gömlu valdastétt kommúnista. Vonandi verður það til bóta í Úkraínu. Það er samt óvíst hvert nýir valdhafar stefna. Æskilegast væri að þeir færu að fordæmi Georgíumanna.

Af Georgíu er það að segja að undir ráðherra efnahagsmála, Kakha Bendukidze, hefur farið fram einkavæðing ásamt umbótum í skattamálum og töluverðu afnámi hafta. Georgía er á réttri leið. Nú er að sjá hvað Kyrgizstan gerir.

Sævar Guðmundsson kl. 10:06