« Kyrgizstan bætist í hópinn | Aðalsíða | Ódýrir símar til sölu »

4. apríl 2005

Hræsnin á Alþingi

Þetta stóð á mbl.is í dag:

Þingmenn Samfylkingarinnar í menntamálanefnd hafa fallið frá ósk sinni um sérstakan fund í nefndinni um ráðningu fréttastjóra Útvarpsins í kjölfar þess að Óðinn Jónsson var ráðinn í starfið þar sem þeir telja að nú skipti mestu að skapa starfsfrið á fréttastofunni án frekari afskipta utan frá.
Sjálfnefndir kyndilberar lýðræðisins, þingmenn Samfylkingarinnar, sem gerðu gríðarlegt mál úr því þegar fulltrúar kjörnir af Alþingi (sem þeir segja að séu fulltrúar þjóðarinnar) mæltu með einum umsækjanda umfram aðra í starf fréttastjóra segja núna ekkert og falla frá ósk sinni um umræðu þegar Markús Örn Antonsson og Bogi Ágústsson ráða Óðinn einir út í horni. Stjórnendur RÚV hunsa þar með álit útvarpsráðs sem er á vegum Alþingis.

Augljóst er að Samfylkingarþingmenn hlaupa upp ef þeir telja það markaðslega gott. Þeim er alveg sama um hugsjónir og málefnin í raun. Ofangreint dæmi sannar það svo ekki verður um deilt. Bölvað skrum.

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 12:05