« Bara kannski | Aðalsíða | Ríkisafþreying er siðferðislega röng »
8. apríl 2005
Hinir alvitru?
Karl Axelsson - hæstaréttarlögmaður,
Kristinn Hallgrímsson - hæstaréttarlögmaður,
Hanna Birna Kristjánsdóttir - Sjálfstæðisflokki,
Pétur Gunnarsson, Framsóknarflokki,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir - Samfylkingu,
Kolbrún Halldórsdóttir -Vinstri hreyfingunni – grænu framboði,
Magnús Þór Hafsteinsson - Frjálslynda flokknum
Elfa Ýr Gylfadóttir - fjölmiðla- og fjarskiptafræðingur,
Já kæru lesendur. Ofangreindur einstaklingar eru þeir sem sátu í fjölmiðlanefndinni sem nú leggur til alræðisvald ríkisins varðandi fjölmiðla. Kjölfestufjárfestum er bannað að eiga í fjölmiðlum og margt annað lagt til svo að ekki verði til sterkir einkafjölmiðlar með skýra stefnu og aðahald eigenda sinna. Ríkið sem er markaðsráðandi á ótal sviðum er undanþegið lögunum.
Hvað gerir þetta fólk betra en þig lesandi góður?
Hvers vegna er þetta fólk að leggja fram þvingandi hugmyndir sem þingmönnum er ætlað að fara eftir? Eru menn allt í einu orðnir foreldrar þjóðfélagsins ef þeir lærðu lög við Háskóla Íslands? Eru starfsmenn stjórnmálaflokka orðnir leiðbeinendur einstaklinganna í landinu? Er konan sem þið sátuð með á skólabekk í Háskólanum allt í einu orðin í þeirri stöðu að segja öllum hvaða hlutabréf þeir mega kaupa og hversu mikið?
Því fer augljóslega fjarri að niðurstöður þessarar nefndar séu eitthvað sem mark er á takandi. Nefndarmenn eru ekki vitringar heldur einstaklingar með skoðanir. Markmið hópsins um að takmarka eignarhald á sér pólitískar forsendur. Ekkert af þessu fólki er skoðunarlaust. Ekki frekar en þú lesandi góður. Það á enginn að hafa heimildir til að beita þvingunaraðgerðum eða ofbeldi á aðra. Hvorki ríkisnefndir, félagasamtök eða aðrir.
Einstaklingurinn er sín eigin nefnd. Hann tekur sjálfur ákvarðanir um líf sitt, hvað hann metur réttar fréttir, hvað hann telur trausta miðla og hvað hann leggur sér til muns. Frelsi takk. Ekki nefndir.
Munurinn á þessum hóp, stjórnmálaflokkum, og svo á Frjálshyggjufélaginu er að hið síðastnefnda vill ekki beita þvingunum. Félagið vill ekki takmarka rétt annarra eða beita þá þvingunum. Félagið styður frelsi. Frelsi allra. Sama hvort þeir eru með óvinsælar skoðanir, eiga óvinsæl fyrirtæki eða eru almennt óvinsælir og sitja í nefndum á vegum ríkisins sem fjallar um fjölmiðlamál.
Þannig er nú það.
Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 20:18