« Yfirlæti og yfirdráttur | Aðalsíða | Tilkynning frá fréttamönnum RÚV »

1. apríl 2005

Frönsk rómantík?

„Hvaða rétt hefur ríkið til þess að koma í veg fyrir að einhver sem vill vinna meira og afla sér þannig meira geri það?“

- Alain Madelin, fyrrum iðnaðarráðherra Frakklands.

Fyrir stuttu síðan var það glæpur í Frakklandi að vinna meira en 35 klst. á viku. Nú er búið að rýmka þessi lög aðeins og mega Frakkar nú vinna 39 klst. á viku. Lögin áttu að búa til milljónir starfa, en sú var ekki raunin. Atvinnuleysi er um 10% í Frakklandi og efnhagsvöxtur undir 2% að meðaltali seinasta áratug. Ásamt öðrum efnhagskvillum.

Þessi löggjöf, núverandi löggjöf er ekkert mikið skárri, gerði líf fátækra kvenna og einstæðra foreldrar erfiðar. Löggjöfin bitnaði á lægst launuðustu konunum, sem þörfnuðust allrar yfirvinnu til þess að lifa. Samkvæmt samtökum kvenna að nafni CLEF.

Framleiðsla er undirstaða þess að við getum veitt okkur gæði. Því duglegri sem einstaklingur er við vinnu(framleiðir meira), því betra hefur hann það. Mörg okkar vilja vinna minna og eiga þannig meiri frítíma. Ef við viljum meiri frítíma en samt njóta sömu gæða og áður verður framleiðni að aukast. Þannig getum við framleitt álíka mikið á minni tíma en áður og þannig hefur skapast frítími.

En það er ekkert endilega sjálfgefið að við viljum öll meiri frítíma. Sumir fá meira út úr því að vinna fimmtudagskvöldi en að sitja á kaffihúsi. Hjá sumum er því þveröfugt farið.

Ef einhver vill vinna 35 klst. á viku þá á honum að vera frjálst að gera svo. En það er óréttlát að neyða aðra til þess líka, með lagasetningu. Sá sem vill vinna 35 klst. á viku, getur bara fundið sér vinnu sem býður upp á slíkt.

Franska ríkisstjórnin hóf auglýsingaherferð í fjölmiðlum fyrir afnám 35 klst. vinnuvikunnar – í 39 klst., þar var slagorðið ;

„Vinna meira til þess að afla sér meira“
(e.”Work more to earn more”)

Það að ríkisstjórnin þurfi að hefja auglýsingaherferð með slagorði sem er svo einföld staðreynd segir allt sem segja þarf um hugsunarhátt margra Frakka.

Hver Frakki vinnur að meðaltali 1560 klst. á ári, eða 20% minna en Bandaríkjamaður. Miðað við fjölmenn mótmæli í Frakklandi fyrir lagabreytinguna er hægt að álykta að einhver hluti Frakka vilji ekki vinna meira á ári. Gott og vel, en þeir sem vilja ekki vinna meira en ákveðið á viku verða að virða rétt annars fólks til vinnu.

Árið 2003 dóu 15.000 eldri borgarar í Frakklandi sökum hitabylgju á meðan margir ættingjar þeirra voru í ferðalögum. Mjög sorglegt, en það sem er sorglegra er að heilbrigðisstéttin mátti ekki vinna yfirvinnu, ekki einu sinni til þess að bjarga mannslífum.

Ríkið á ekki að skipa fólki hversu margar klukkustundir það vinnur á viku. Það á að vera samningsatriði einstaklinga eða félagasamtaka við atvinnuveitendur.

Fannar Jónsson kl. 14:04