« Endurspeglast kynþáttahyggja í afskiptum ríkisins af sjónvarpsefni? | Aðalsíða | Fjórða valdið? »
18. apríl 2005
Forræði yfir fullorðnum
Sjálfræði er merkilegur áfangi í lífi hvers einstaklings. Ríkisvaldið veitir einstaklingnum fullan eignarrétt yfir eigin líkama. Foreldrar og forráðamenn breytast úr ákvarðanatökum í samstarfsaðila og félaga, ef þeir voru það ekki fyrir. Fjárræði verður að veruleika. Áfengi verður lögleg neysluvara (þó meira í raunveruleikanum en með vilja stjórnvalda). Í það heila þýðir sjálfræði að einstaklingnum er veitt það frelsi og sú ábyrgð sem fylgir því að verða fullorðinn - eða hvað?
Á gjöf Njarðar er galli: Þegar einstaklingur fær í hendur frelsi og ábyrgð sjálfræðisins fær hann einnig að vita að sjálfræðinu fylgja margar takmarkanir. Eignarréttur einstaklingsins yfir eigin líkama er til lítils ef efnaneysla- og notkun er ekki eftir smekk stjórnvalda. Tjáningarfrelsið er til lítils ef tjáningin er ekki sett fram eftir smekk stjórnvalda. Hið sama má segja um trúfrelsið, athafnafrelsið og skoðanafrelsið. Þegar smekk stjórnvalda er misboðið er því svarað með boðum og bönnum í formi fyrirskipana, fangelsisvistar, skatta og gjalda, eða hótana um eitthvað slíkt. Í stuttu máli sagt hagar ríkið sér á margan hátt eins og strangir foreldrar með útvíkkaða möguleika til að refsa og hegna fyrir óæskilega hegðun, og sívaxandi möguleika til að hafa eftirlit með börnum sínum.
Nú vill undirritaður ekki meina að ríkið hafi ekkert hlutverk þegar kemur að fullorðnum, sjálfráða einstaklingum. Þeir sem beita ofbeldi, stunda svik eða á annan hátt ráðast óvelkomnir inn í líf fólks eiga að sjálfsögðu að mæta afskiptum ríkisins. Hvað flest allt annað varðar þá vill undirritaður meina að stjórnvöld eigi að hafa hófsemi að leiðarljósi og að stjórnmálamenn leitist við að treysta frjálsum einstaklingum fyrir eigin lífum. Snýst sjálfræði ekki einmitt um það, eða hvað snýst það þá um?
Geir Ágústsson kl. 16:16