« Forræði yfir fullorðnum | Aðalsíða | Kirkjan og pólitíkin »
19. apríl 2005
Fjórða valdið?
Þegar rætt er um fjölmiðla sem „fjórða valdið“ held ég að gott sé að staldra við og velta fyrir sér hvers eðlis þetta vald er. Augljóslega er verið að skírskota til ríkisvaldsins og hinna þriggja þátta þess, löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds. Vaknar þá spurningin hvort hægt sé að leggja að jöfnu vald ríkisins og vald það sem fjölmiðlum er ætlað?
Ég efast ekki um að fjölmiðlar geta haft mikil áhrif á skoðanir fólks, umræður og jafnvel atburðarás. En áhrif þeirra ná einungis eins langt og við leyfum þeim. Hvert og eitt getum við ákveðið hvort við tökum mark á því sem þeir boða. Fjölmiðlar hafa ekkert eiginlegt vald yfir frjálsum vilja okkar.
Öðru máli gegnir um ríkisvaldið. Þegar því er beitt eigum við þess engan annan kost en að beygja okkur undir það.
Valur Einarsson kl. 20:37