« Án íhlutunarsemi | Aðalsíða | Forræði yfir fullorðnum »

18. apríl 2005

Endurspeglast kynþáttahyggja í afskiptum ríkisins af sjónvarpsefni?

Í 2. mgr. 7. gr. útvarpslaga nr. 53/2000 segir:

Sjónvarpsstöðvar skulu kosta kapps um að meiri hluta útsendingartíma sé varið í íslenskt dagskrárefni og annað dagskrárefni frá Evrópu.

Í 1. mgr. 10. gr. sömu laga segir:

Sjónvarpsstöðvar skulu, eftir því sem unnt er, sjá til þess að minnst 10% af útsendingartíma, sbr. 2. mgr. 7. gr., á ári hverju eða minnst 10% af árlegu dagskrárfé sé varið til evrópskra verka sem framleidd eru af sjálfstæðum framleiðendum.

Mér þætti gaman að heyra alþingismenn útskýra af hverju einkaaðili má ekki sjónvarpa afrísku efni allan daginn ef hann vill. Af hverju neyðir íslenska ríkið hann til að kaupa frekar efni af einhverjum sem eru ljósari á hörund og búa eilítið norðar í heiminum?

Franski stjórnmálamaðurinn Le Pen hefur gjarnan verið nefndur rasisti þar sem hann vill takmarka innflutning annarra en Evrópumanna til Frakklands. Hann telur að grundvallarmunur sé á menningu Evrópumanna og annarra. Hann er talinn rasisti af þeirri ástæðu að hann vill gera upp á milli meintrar evrópskrar menningar og annarrar menningar.

Oddgeir Einarsson kl. 09:06