« Málþing, fimmtudag kl. 12 í Iðnó - Ingibjörg Sólrún verður gestur okkar | Aðalsíða | Án íhlutunarsemi »
13. apríl 2005
Þegar verkin tala
Agnes Bragadóttir hefur sótt um launalaust leyfi frá Morgunblaðinu til þess að koma á laggirnar félagi sem mun hafa það að markmiði að bjóða í stóran hlut Símans fyrir hönd almennings. Mikill fjöldi Íslendinga hefur heitið því að leggja fé í verkefnið og eru komin loforð upp á um einn milljarð króna frá almenningi.Undirritaður fagnar framtaki Agnesar af heilum hug. Hún er kona sem lætur verkin tala og kona sem virðist hafa meiri trú á hinu frjálsa einkaframtaki en hinu þvingaða ríkisframtaki.
Það að almenningur "eignist hlut" í Símanum við sölu hans eða einkavæðingu er nefninlega ekki ný hugmynd. Vinstrimenn hafa krafist þess í langan tíma að ef og þegar Síminn verður einkavæddur þá verði hann brotinn upp í verðlausar einingar jafnmargar Íslendingum og dreift í hendur allra landsmanna endurgjaldslaust. Á þann hátt voru t.d. olíulindir Rússlands einkavæddar með þeirri afleiðingu að flestir sem fengu örhluti í auðlindinni mátu þá ekki að verðleikum. Hlutirnir voru í stuttu máli sagt verðlausir. Nokkrir framtakssamir menn sáu tækifæri í þessari stöðu og keyptu upp örhlutina í miklu magni fyrir nánast ekkert verð og urðu fyrir vikið að einhverjum ríkustu og valdamestu mönnum Rússlands og þótt víðar væri leitað. Íslenskir vinstrimenn eru e.t.v. ekki hrifnir af olíugörkum Rússlands, en þeir vilja skapa jarðveginn sem þeir spruttu upp úr. Svo mikið er víst.
Framtak Agnesar er af öðrum toga. Hún býður einstaklingum að leggja fé af mörkum svo þeir geti átt von um að eignast hlut í verðmætu fyrirtæki. Undirritaður óskar henni alls hins besta og vonar að hún og félagar hennar fái heiðarlega meðferð í höndum þeirra sem sjá um sölu Símans.
Geir Ágústsson kl. 12:26