« Lions | Aðalsíða | Hinir alvitru? »

8. apríl 2005

Bara kannski

Þetta var á visir.is í dag:

Guðni sagði ljóst að hver og einn gæti stundað þá atvinnu sem hann vildi en hann teldi þó ekki hagkvæmt að standa utan stuðningskerfisins. Þá óskaði hann forsvarsmönnum Mjólku velfarnaðar.
Gaman að ráðherra segi að ekki sé hagkvæmt að framleiða landbúnaðarvörur nema vera inn í flóknu styrkjakerfi ríkisins. Hann er þar með að segja að ekki sé grundvöllur fyrir íslenskum landbúnaði. En sem betur fer er dökkur dómur ráðherrans ekki algengur skilningur manna og eru forsvarsmenn Mjólku gott dæmi þess. Þeir hafa einnig gerst djarfir og ætla að standa utan styrkjakerfis ríkisins enda sannir frumkvöðlar þar á ferð.

Ráðherra hélt svo áfram:

Landbúnaðarráðherra talaði einnig um Lánasjóð landbúnaðarins og sagði rekstur hans hafa verið erfiðari að undanförnu, meðal annars vegna lækkandi vaxta í almenna bankakerfinu.
En leiðinlegt að ríkisreksturinn gangi nú ekki sem skyldi, gæti verið að þannig sé með allan rekstur ríkisins? Getur hugsast að ráðherra væri nær að íhuga hvernig leggja mætti niður þennan lánasjóð heldur en að íhuga hvernig megi bæta rekstrarstöðu sjóðs sem er í öskrandi samkeppni við einkafyrirtæki á frjálsum markaði?

Kannski. Bara kannski.

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 17:29