« Þegar verkin tala | Aðalsíða | Endurspeglast kynþáttahyggja í afskiptum ríkisins af sjónvarpsefni? »
17. apríl 2005
Án íhlutunarsemi
1. Þjóðinni má stjórna með réttlæti, herliði með slægvizku og dugnaði. En unnt er að hljóta ríkið með því að vera ekki íhlutunarsamur um hagi fólksins.
2. Hvernig veit ég þetta? Svo, sem sagt verður:
Því fleira sem lögin banna, því fátækara verður fólkið. Því fleira sem til er af vopnum, því meira verður um óeirðir í landi. Því kænni og duglegri sem menn verða, því óeðlilegra verður allt. Því meira verður um þjófa og ræningja, sem lög og fyrirskipanir eru fleiri.
3. Þess vegna hefur vitur maður sagt:
Ég vil forðast íhlutunarsemi, þá mun fólkið breytast af sjálfu sér. Ég vil hafa hljótt um mig, þá mun fólkið komast sjálfkrafa á rétta leið. Ég vil sleppa öllu umstangi, þá mun fólkið auðgast af sjálfu sér. Ég vil hafna öllum metorðum, og fólkið mun venjast á einfeldni.
Bókin um veginn, eftir Lao-tze, kafli LVII
Gunnlaugur Jónsson kl. 13:32