« Ókeypis ferð til Rómar | Aðalsíða | Af íhaldsmanni og rökum hans »
6. apríl 2005
Af orðum og athöfnum
Það þarf engan snilling eða erfðafræðivísindamann til að sýna fram á hver munurinn er á Afríkunegra með prik í hendinni eða Íslendingi. Vestrænar þjóðir vorkenna Afríkubúum mjög mikið en þeir búa þarna í gróðursælustu álfu heims og gætu framleitt sex sinnum meira af mat en þeir þurfa ef þeir nenntu því. Við búum hér á grjóthnullungi, höfum ekkert nema fiskinn og klakann og höfum það bara stórfínt á meðan þeir nenna ekki að berja af sér flugurnar.
Flestum, þ. á m. mér, þykja ofangreind ummæli til marks um heimsku þess sem setur þau fram. Ég myndi gjarnan vilja fá að kalla viðkomandi hálfvita án þess að vera refsað fyrir slíkan munnsöfnuð.
Sá sem lét ummælin út úr sér þurfti ekki aðeins að þola opna lýðræðislega umræðu þar sem 90% fólks úthrópaði hann sem asna. Nei það var ekki nóg, honum var líka refsað af ríkinu.
Bobby Fischer er sá Íslendingur sem síðast sagði kjánalega hluti um útlendinga svo tekið var eftir. Erum við, 99% sem erum ósammála honum, svo rökþrota gegn því sem hann segir að okkur nægir ekki að benda á rangfærslur hans?
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið það standast meginregluna um tjáningarfrelsi að refsa mönnum fyrir að segja að gyðingum hafi í raun ekki verið slátrað í seinni heimstyrjöldinni. Það er illa dæmt. Eru sönnunargögnin um Helförina ekki nógu afgerandi?
Þegar kirkjan drap fólk á miðöldum fyrir að halda fram staðreyndum sem stönguðust á við kenningar hennar var það vegna þess að kirkjan hafði ekki sannleikann sín megin. Jörðin var í raun hnöttótt og snerist í kringum sólina. Það var nauðsynlegt að refsa þeim sem reyndu að rökstyðja annað til að viðhalda hinum opinbera sannleika.
Í ljósi sögunnar er það mitt álit að refsingar fyrir skoðanir vekja efasemdir um gagnstæðar skoðanir. Ég legg því til að ákvæði 233. gr. a hegningarlaga verði afnumið strax.
Fordómar gegn útlendingum skaða þá ekki nema fordómarnir skili sér í einhverri annarri háttsemi sem beinist gegn þeim. Þannig breytir það engu fyrir Kínverja sem vinnur á hálendinu fyrir hundrað sinnum hærra kaup en heima fyrir þótt ég segði hann skáeygðan viðbjóð sem væri latur og með prik í hendinni. Hann myndi bara hlæja að mér og kaupa sér nýtt hús í Kína.
Hins vegar skaðar herför ASÍ gegn útlendu vinnuafli hagsmuni Kínverjans verulega, og er honum engin sárabót í því að verkalýðsfrömuðirnir lofsami Kína í orði kveðnu.
Oddgeir Einarsson kl. 08:57