« Minnislisti hins stjórnlynda | Aðalsíða | Sundurliðun skatta í skattframtali »
3. mars 2005
Vill ráðherra jafnan rétt kynjanna eða ójafnan?
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ætlar að beita sér fyrir aðgerðum til að gera konum auðveldara að stofna og reka fyrirtæki.
Ekki ætla ég að deila við ráðherra um hvort að það sé vandamál eður ei að konur stofni síður fyrirtæki en karlar.
Ekki ætla ég heldur að rökræða hvort að ástæðan er mismunandi eðliseiginleikar kynjanna, uppeldislegar ástæður, gildismat, áhugamál, eða hvaðeina sem kann að ráða því að konur reka síður fyrirtæki en karlar.
Eitt er þó víst að hundurinn liggur ekki grafinn í neinum reglum sem gera körlum auðveldar að stofna og reka fyrirtæki en konum.
Spennandi verður að sjá hvernig væntanlegar aðgerðir ráðherra koma til með að samræmast jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Svo óheppilega vill til fyrir ráðherra að þar er gert ráð fyrir að allir séu jafnir fyrir lögunum án tillits til kynferðis og að karlar og konur skuli njóta jafns réttar í hvívetna.
Oddgeir Einarsson kl. 15:40