« Heimur batnandi fer | Aðalsíða | Skrýtinn hugsunarháttur »
11. mars 2005
Ummæli vikunnar: Fernanda Nakayama
Að mínu mati kemur besta setning vikunnar frá eiginkonu Auðuns, nýráðins fréttastjóra útvarps. Eftir allar þessar rökræður og málalengingar þá var Fernanda Nakayama spurð hvað henni fyndist um málið og hvort eitthvað svipað hefði komið fyrir í heimalandi hennar.
Hún svaraði með því að benda á að ekkert slíkt gæti komið fyrir í Brasilíu og því skildi hún eiginlega ekki þessi vandræði. Ástæðan er einfaldlega sú að Brasilía er þróað land og því halda þeir ekki uppi sósíalísku ríkisútvarpi.
Ágúst Bjarnason kl. 19:18