« Vill ráðherra jafnan rétt kynjanna eða ójafnan? | Aðalsíða | Auðsköpun og umhverfisvernd »

4. mars 2005

Sundurliðun skatta í skattframtali

Þessa dagana er hinn árlegi glaðningur Ríkisskattstjóra að berast landsmönnum og er þar átt við skattframtalið. Flestir eru farnir að telja fram til skatts á Netinu sem er kærkomin þjónusta af hálfu skattayfirvalda. Í skattframtalinu þarf að sundurliða hvaðan allar tekjur okkar koma og skattlagt er eftir uppruna þeirra. Ekki eru þó allir skattar taldir fram þarna þar sem virðisaukaskattur, tryggingagjald, tollar, áfengisgjald og fleira er ekki tekið með í þennan útreikning. Það eru skattar sem hinn almenni borgari fær sjaldnast að sjá, hvað þá sundurliðaða. Svo eru enn aðrir skattar sem koma reglulega í pósti, svo sem bifreiðagjöld, fasteignagjöld, holræsagjöld og fleira. En gott og vel.

Úr því að skattayfirvöld eru orðin svona tæknivædd, væri þá nokkuð úr vegi að fá að sjá í hvað skattarnir fara? Fá svona heildar yfirlit yfir greidda skatta, á hvaða formi þeir eru greiddir og í hvað þessir peningar fara. Það væri t.d. gaman að sjá hve mikið fer í feðraorlof, utanríkisþjónustu, listamannalaun og aðra opinbera menningu, partý á vegum hins opinbera, erlent samstarf og önnur gæluverkefni. Þá væri mjög fróðlegt að sjá hversu mikið fer í heilbrigðiskerfið, menntakerfið, vegakerfið og opinbera stjórnsýslu svo eitthvað sé nefnt. Þetta gæti orðið til þess að fólkið í landinu fengi að sjá, svart á hvítu, hvað það er raunverulega að borga fyrir, þ.e. krónutöluna.

Þetta er eitthvað sem skattayfirvöld mættu athuga og væri væntanlega mjög auðvelt í framkvæmd, þar sem bæði Ríkisreikningur og ársreikningar sveitafélaga liggja á tölvutæku formi á netinu.

Arnar Arinbjarnarson kl. 14:21