« Gjaldfrjáls leikskóli er slæm hugmynd | Aðalsíða | Enn um útþynningu mannréttindahugtaksins »

23. mars 2005

Spurt og svarað

Á einum stað er spurt (lesendur eru beðnir velvirðingar á orðalaginu): Þegar maður krefst rökstuðning á allri einkavæðingar- og einkarekstursvitleysunni er fátt um svör. Jú, vissulega þekkjum við staðhæfinguna um að einkarekstur sé hagkvæmari en opinber rekstur, en hvar eru rökin á bakvið hana? Hefur einhver einhverntímann fært rök fyrir þessari fullyrðingu? Ef svo er auglýsi ég eftir þeim rökstuðningi hið snarasta.

Svar: Einkafyrirtæki sem standa í óhagkvæmum rekstri fara á hausinn og fjármagn fer á hagkvæmari staði. Fyrirtæki og stofnanir ríkisins búa ekki við sama aðhald enda oftast vernduð með lögum eða lögboðuðum gjöldum og sköttum, burtséð frá því hvort viðskiptavinirnir eru ánægðir eða ekki.

Nú er að vona að þetta vafamál vinstrimannsins sé frá og að umræðan um einkavæðingu og ekki einkavæðingu geti farið að snúast um það hvort við viljum yfirleitt hagkvæmni og aðhald í rekstri á stofnunum og fyrirtækjum ríkisins.

Geir Ágústsson kl. 13:28