« Ummæli vikunnar: Fernanda Nakayama | Aðalsíða | Hvað eru mannréttindi »

12. mars 2005

Skrýtinn hugsunarháttur

Það eru sumar iðjur fólks sem eru ekki vinsælar hjá fjöldanum. Nú eiga reykingar til dæmis undir högg að sækja. Málflutningur gegn þessum iðjum er oft á þá leið að af þeim hljótist mikill kostnaður. Þær séu svo dýrar fyrir heilbrigðiskerfið og finnst fólki ósanngjarnt að borga fyrir skaðsemi þeirra. Því eru margir á þeirri skoðun að þessar iðjur eigi að banna, vegna kostnaðar sem leggst á aðra sem þær ekki stunda.

En afhverju er ekki hægt að koma til móts við þá sem af frjálsum vilja stunda þessar iðjur?

Til dæmis gæti það borgað lægri skatt og borið kostnaðinn sem af þeim hlýst sjálft (auðvitað getur stundum verið erfitt að segja til um hver orsök óheilbrigðis sé).

Nei, mörgum finnst réttlátara að banna þær bara yfir höfuð.

Þetta finnst mér skrýtinn hugsunarháttur, banna á fólki eitthvað vegna þess kostnaðar sem leggst á aðra. En þessu sama fólki er ekki boðinn kostur á því að borga minni skatt og bera kostnaðinn vegna þeirra sjálft.

Fannar Jónsson kl. 22:25