« Vinstrimenn í MR eru ekki vinstrimenn | Aðalsíða | Óholl nálgun Wiesental-stofnunarinnar »
26. mars 2005
Misskilningur aldarinnar
Sá misskilningur kemur reglulega upp að fólk kallar núverandi ríkisstjórn hægrisinnaða. Þetta er skiljanlegt, þar sem yfirlýstir vinstriflokkar eru í stjórnarandstöðu, en kolrangt. Þvert á móti vill ríkistjórnin mikil afskipti af lífi fólks, eins og nýjasta útspil hennar staðfestir.
Nú þegar eru í gildi lög nr. 39/1970 um gæðamat á æðardúni. Samkvæmt þeim má sá sem á dún hér á landi ekki selja dún til einhvers í útlöndum sem líst á vel á dúninn, nema lögskipaðir dúnmatsmenn veiti dúninum blessun sína. Þessir matsmenn eru á engan hátt aðilar að viðskiptum með dúninn þó að þeir geti komið í veg fyrir þau gegn vilja bæði seljanda og kaupanda. Það varðar refsingum að fara ekki að þessum reglum. Kostnaðinn af hinu óumbeðna mati ber seljandi dúnsins.
Ríkisstjórnin hefur nú áhyggjur af því að það standist ekki EES samninginn að gera meiri kröfur til útflutningsvara en ef sama vara væri seld á milli manna innanlands. Ríkisstjórnin telur að ekki sé rétt að gera meiri kröfur til viðskipta yfir landsteinana en annarra viðskipta og lagði því fram lagafrumvarp.
Hvað skyldi lagafrumvarpið innihalda? Einhver gæti freistast til að ímynda sér að þar sem hér væri hægristjórn hlyti hún að afnema þessi afskipti af frjálsum viðskiptum. Það væri seljanda og kaupanda að meta vöruna og þeir gætu jafnvel óskað eftir mati af fúsum og frjálsum vilja ef þeir teldu það nauðsynlegt fyrir viðskipti sín. Ekki mati lögskipaðra spekúlanta, heldur manna sem aðilarnir sjálfir teldu best til þess fallna að meta eiginleika vörunnar.
Nei. Þvert á móti. Á Alþingi liggur nú fyrir stjórnarfrumvarp að lögum um gæðamat á æðardúni. Er lögunum ætlað að útvíkka núgildandi reglur um lögskipaða gæðamatsmenn á æðardúni. Nú gildir hið þvingaða mat líka í innanlandsviðskiptum. Þannig að ef Jón bóndi á reiting af dúni og vill selja Sigurði þá nægir ekki að Sigurður kíki í kaffi til Jóns og skoði vöruna áður en þeir semja um verð, heldur þarf að kalla til lögskipaða sérfræðinga um málið.
Ofangreint sýnir að ríkisstjórnin fer ekki varhluta af þeirri afskiptasemi af lífi fólks sem einkennir vinstristefnu. Í stað afskiptasemi ættu stjórnmálamenn að tileinka sér umburðarlyndi. Þeir ættu að tileinka sér hina dúnmjúku frjálshyggju.
Oddgeir Einarsson kl. 20:57