« Biskup segir gamanmál | Aðalsíða | Eru frjálshyggjumenn öfga-vinstrimenn? »

28. mars 2005

Orðskrípið "nýfrjálshyggja"

Frjálshyggjufélagið byggir stefnu sína á gömlum gildum frjálshyggjunnar. Á ensku nefnist stefna félagsins Classical Liberalism og vísar það heiti til gömlu frjálshyggjumannanna sem lögðu grunninn að hugmyndafræðinni á öllum sviðum. Frjálshyggjan gengur út á frelsi og réttlæti. Frelsi til athafna og eigna. Frelsi til trúar o.s.frv.

Allt tal um nýfrjálshyggju félagsmanna er því marklaust. Slík stefna er ekki til. Annað hvort er fólk sammála frjálshyggjunni eða ekki. Fólk sem tekur aðeins undir algjört frelsi hvítra en hafnar frelsi svartra er t.d. ekki að fara eftir frjálshyggju.

Hins vegar er þetta orðskrípi til þess ætla að koma einhverju óorði á frjálshyggjuna og fylgismenn þeirrar stefnu hér á landi. Tilraunin er vindhögg því orðið hefur enga merkingu.

Gott mál.

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 01:02