« Auðsköpun og umhverfisvernd | Aðalsíða | Mannúðin er í hægristefnu »

6. mars 2005

Myndbandakvöld

Mánudaginn 7. mars munu Ungir frjálshyggjumenn standa fyrir sýningu á þætti í þáttaröðinni Bullshit! eftir þá félaga Penn & Teller. Þátturinn sem sýndur verður ber yfirskriftina The War on Drugs. Í þættinum er fjallað á skemmtilegan hátt um hvernig ríkið hefur tapað stríðinu gegn vímuefnum á öllum vígstöðum og hvernig það traðkar á grundvallarréttindum fólks. Rætt er við aðila sem eru fylgjandi því að afnema bann við fíkniefnum og aðra sem eru á móti.

Sýning hefst klukkan 20:00 í hliðarsal Kringlukrárinnar.

Allir velkomnir.

Sævar Guðmundsson kl. 16:24