« Opið hús félagsins | Aðalsíða | Forbes, fátæktin og fyrrum alþingismaður »

16. mars 2005

Aðför að íslenskri tungu

Mér finnst alveg fyrir neðan allar hellur að Sissel Kyrkjebø skuli ætla að syngja á norsku á tónleikum sínum hér á landi. Með þessu áframhaldi styttist í að íslensk tunga og séríslensk menning hverfi af þessari jörð.

Ég geri að minnsta kosti þá kröfu að á tónleikunum verði túlkur, sem þýði söng Sissel yfir á íslensku. Ef túlkurinn er lagviss ætti samhljómur þeirra að verða nokkuð góður og þannig auka á unað hlustenda.

Ívar Páll Jónsson kl. 14:15