« Myndbandakvöld | Aðalsíða | Ný byggðasjónarmið: Að halda Byggðastofnun í rekstri »

7. mars 2005

Mannúðin er í hægristefnu

„Nú hefur þú verið að styðja mál sem varða almenning og auka veg almennings, þetta eru nú ekki mál sem tengjast hægristefnu.“ Sagði Katrín Jakobsdóttir þáttastjórnandi í Sunnudagsþættinum á Skjá Einum.

Það verður seint sagt að Katrín sé vel að sér um frjálshyggjuna og hægristefnu almennt. Sú grunnhugmynd hægristefnu að leyfa einstaklingum að velja og að leyfa þeim að elta hamingjuna á eigin forsendum er væntanlega ekki málefni sem varða almenning. Sú grunnhugmynd hægrimanna að ekki megi traðka á einstaklingnum og beita hann hvers konar kúgun er væntanlega ekki heldur málefni sem varðar almenning. Það varðar kannski ekki almenning heldur að stefna frelsis hefur í gegnum tíðina fært öllum sem í þeim löndum búa aukna velferð á meðan lönd sem aðhillast vinstristefnu hafa siglt í strand og almenningur í þeim löndum haft það ömurlegast allra á þessum hnetti?

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 19:16