« Frakkar og Þjóðverjar grafa dýpra | Aðalsíða | Vinstrimenn í MR eru ekki vinstrimenn »
24. mars 2005
Mannslíf glatast
Á mbl.is segir í dag:
Ítalska strandgæslan bjargaði fjórum ólöglegum innflytjendum undan ströndum Sikileyjar í dag en bát þeirra hafði hvolft. Þrír bátsverja höfðu drukknað. Verið er að kanna hvort fleiri kunna að vera á lífi í sjónum.Tyrkneskt kaupskip lét vita af því að sex manns væru í sjónum undan ströndum Sikileyjar til móts við bæinn Ragusa. Þúsundir mann reyna á ári hverju að komast frá Norður-Afríkuríkjum og Mið-Austurlöndum til Evrópulanda í leit að betra lífi.
Það er hugsanlega erfitt að átta sig á því hvers vegna fólk tekur ákvörðun um að fara út á rúmsjó á gúmmíslöngu eða tréfleka jafnvel með börn sín og ættingja. Flestir þessara einstaklinga enda líf sitt í greipum hafsins og lík þeirra rekur á fjörur fjarlægra ríkja.
Þetta fólk vildi ekki deyja. Það vildi betra líf. Það þráði möguleika á því að geta eignast eitthvað, að geta tjáð skoðanir sínar án þess að óttast aftöku, rækta akur sinn eða fara til messu á sunnudegi. Þetta fólk taldi að áhættan væri þess virði. Þorstinn í frelsið var slíkur að fólkið tók þessa áhættu.
Þarf að deila um hvort betra er að stefna að frelsi eða ríkisafskiptum og sósíalisma?
Ef þú, lesandi góður, ert í vafa. Gerðu þá rannsókn á því hversu margir hafa farið á slöngum og flekum frá Bandaríkjunum, Íslandi og öðrum Evrópuríkjum til landa sem búa við meiri sósíalisma. Svo er vert að spyrja sig hvers vegna straumurinn sé alltaf til frjálsu landanna?
Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 13:15