« Hugverkakaup og hugverkastyrkir | Aðalsíða | Engin rök »

2. mars 2005

Hver er hræddur við Ernst Zundel?

Morgunblaðið segir í dag frá því að Kanadamenn hafi vísað úr landi gyðingahatara fyrir áróður sinn sem sé „ógn við þjóðaröryggi Kanada og alþjóðasamfélagið“.

Það má vera öflugur áróðursmaður sem skapar svona mikla ógn með orðum sínum. Ætli rök hans séu svona rosalega sterk að ekki sé hægt að kveða þau í kútinn í opinni umræðu? Ekki líklegt.

Ég efast ekki um að yfirgnæfandi meirihluti manna er ósammála honum Ernst. Það gerir skoðanir hans í hæsta máta óvinsælar og því þykir sjálfsagt að banna honum að tjá þær.

En maður veltir óneitanlega fyrir sér hvað meirihlutinn þurfi að vera stór, og hversu óvinsælar skoðanirnar þurfa að vera til að nauðsyn sé að þagga þær niður með valdi. Gæti kannski verið að þú, lesandi góður, lumir á einni svoleiðis hugsun?

Valur Einarsson kl. 10:21