« Skrýtinn hugsunarháttur | Aðalsíða | Frelsi í framkvæmd: Eistland »

14. mars 2005

Hvað eru mannréttindi

Atli Gíslason þingmaður Vg er lögmaður sem ég ber mikla virðingu fyrir. Hann hefur m.a. gefið vinnu sína til lögfræðiaðstoðar Orators, félags laganema, um árabil og stuðlað að því að margur hefur fengið ókeypis lögfræðiaðstoð sem e.t.v. hafði ekki efni á henni. Þetta er góðgerðarstarfsemi í sinni bestu mynd, þar sem Atli styrkir góðan málstað án þess að þvinga um leið aðra til að gera hið sama.

Mig langar samt að leyfa mér að vera ósammala Atla hvað skilgreiningu á mannréttindum varðar. Skilgreining Atla er þessi:

Það eru mannréttindi að sjónarmið, reynsla og þarfir beggja kynja séu höfð að leiðarljósi við alla stefnumörkun og ákvarðanatöku stjórnvalda...

Ég er sammála því að eðlilegt sé að sem flest sjónarmið séu höfð í huga við töku stjórnvaldsákvarðanna sem og við almenna stefnumörkun. Það hefur þó ekert með mannréttindi að gera. Það væri hins vegar mannréttindabrot að mismuna tiltekinni konu eða karli við skipun í embætti á grundvelli kynferðis. Einnig væri það mannréttindabrot ef stjórnvöld tækju ákvörðun um pyntingu á tilteknum manni, burtséð frá því hvort að sjónarmið allra í landinu, karla, kvenna, samkynhneigðra, rauðhærðra og örvhentra hefðu komist að við töku ákvörðunarinnar.

Mér hundleiðist þessi útþynning á mannréttindahugtakinu. Það eru auðvitað ekki mannréttindi neins að hlutföll kynjanna séu alltaf 50/50 í hverjum króki og hverjum kima samfélagsins. Burtséð frá því hvort það sé æskilegt eða rétt.

Ég vil líka benda á að kynjakvótar og svokölluð jákvæð mismunun eru ekki tæki til að efla mannréttindi, heldur undantekningar frá grundvallarreglunni um jafnræði þegnanna þar sem slíkar reglur bjóða þeirri hættu heim að tilteknum einstaklingi sé mismunað eingöngu vegna kynferðis. Það er mannréttindabrot.

Oddgeir Einarsson kl. 17:22