« Gunnlaugur í Silfrinu | Aðalsíða | Spurt og svarað »
22. mars 2005
Gjaldfrjáls leikskóli er slæm hugmynd
Vegna hugmynda í borgarstjórn Reykjavíkur um gjaldfrjálsa leikskóla vill Frjálshyggjufélagið benda á hið augljósa, að ekkert er til sem er ókeypis. Einhver ber í öllum tilvikum kostnaðinn. Í leikskólamálum eru það skattgreiðendur sem bera þungann af fögrum loforðum stjórnmálamanna en ekki þeir sjálfir.
Rétt er að það kemur barnafólki mjög vel að aðrir borgi fyrir það leikskólavist. Um það skal ekki deilt. Það er hins vegar ekki réttlæting á því að taka fé af einum og færa öðrum til nytja.
Þeir einstaklingar sem ekki eiga börn, ekki geta átt börn eða af einhverjum ástæðum öðrum geta ekki nýtt sér leikskóla eru þvingaðir til greiðslu. Hér er komið fram mikið óréttlæti. Hið rétta er að þeir sem eigi börn greiði fyrir leikskólavist þeirra rétt eins og foreldrar greiða matarkostnað, fatakostnað og annan kostnað sem til fellur við barneignir.
Það er ekki sök eins að öðrum fæðist barn. Því skal honum ekki gert að bera kostnað vegna málsins.
Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 23:14