« Hvað eru mannréttindi | Aðalsíða | Fréttastjóramálið »

14. mars 2005

Frelsi í framkvæmd: Eistland

Fall Sovétríkjanna hefur verið mannkyninu ómetanleg lexía. Flestum lærðist að sósíalismi leiðir til gríðarlegra hörmunga fyrir mannkyn, náttúru og friðsamleg samskipti milli manna. Einnig lærðist að það kann ekki góðri lukku að stýra að þvinga sjálfstæða einstaklinga inn í miðstýringu, skriffinnsku og viðamikla opinbera áætlanagerð. En ekki nóg með það. Árin eftir fall Sovétríkjanna hafa veitt gríðarlega góða innsýn inn í mátt hinna ýmsu efnahagsstefna. Ekkert nýtt hefur lærst - frelsi er áfram best og helsi er áfram verst - en með nýjum dæmisögum er nú von til að ennþá fleiri læri af mannkynssögunni.

Eistland er dæmi um ríki sem hefur ákveðið að hella sér af fullum krafti á markaðstorg heimsviðskipta og samkeppni. Uppskeran hefur verið ríkuleg. Með því að snarauka efnahagslegt frelsi, m.a. með því að innleiða ýmsar markaðsvænar aðgerðir svo sem flatan og lækkaðan skatt á tekjur einstaklinga og hagnað fyrirtækja, hefur Eistum tekist að skjótast upp tekju- og framfarastiga heimsins. Í kjölfarið koma svo betrumbætur á öllum öðrum sviðum mannlífs. Ýmsar tölur í því samhengi, svo sem skólaseta og C02-útblástur, hér.

Eistland er engin undantekning þegar kemur að því að efnahagslegt frelsi leiði til frelsis og endurbóta á öllum öðrum sviðum mannlífs og samfélags. Eistland er umkringt ríkjum sem hafa fetað aðrar slóðir en þær sem snúa að frelsi og virðingu fyrir mannslífum og eignarrétti, og þau ríki sitja eftir með sultna þegna í slitnum fötum undir harðstjórum í gullklæðum sem mæla sósíalíska fagurgala.

Geir Ágústsson kl. 17:26