« Vinnuvikan | Aðalsíða | Mannslíf glatast »

24. mars 2005

Frakkar og Þjóðverjar grafa dýpra

Eins og allir vita siglir flest allt í strand í efnahagsmálum innan ESB. Hagvöxtur hefur dregist saman hröðum skrefum í mörg ár og stefnir í neikvæðan hagvöxt á næstu árum. Verst allra landa standa Þýskaland og Frakkland sem glíma við gífurlegt atvinnuleysi og lægstan hagvöxt. Á sama tíma eru önnur lönd á sama landsvæði að ná miklum árangri. Eistland og svipuð lönd hafa farið í átt að frelsi en ekki höftum og uppskera því gríðarlegan hagvöxt og árangur.

Niðurstaða leiðtoga Frakklands og Þýskalands í vikunni var sú að auka þurfi aðstoð ríkisins við ýmsar atvinnugreinar og reyna þannig að snúa hjólum atvinnulífsins hraðar.

Þetta mun ekki virka.

Ástæðan er mjög einföld. Ástandið er eins og það er orðið vegna afskipta ríkisins. Laun, vinnutími, hlunnindi, verklag, eignarhald, tilfærsla fjármagns, erlend viðskipti, innflutningur, allt eru þetta hlutir sem ríkið hefur nánast alræðisvald um. Í slíkum veruleika gengur engum vel. Dæmin eru endalaus í sögunni. Þar sem valdboð og afskipti eru mikil eru árangur lítill. Ástandið er ekki slæmt þar sem ríkisafskipti eru lítil. Þarf frekari sannana við?

Lærum af sögunni.
Það er ekki flókið.

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 13:00