« Orðskrípið "nýfrjálshyggja" | Aðalsíða | Yfirlæti og yfirdráttur »
28. mars 2005
Eru frjálshyggjumenn öfga-vinstrimenn?
Löng hefð er fyrir því að ræða um hægri- og vinstrimenn í stjórnmálum. Er skiptingin alla jafna í grófum dráttum sú að hægrimenn hneigjast í átt að einstaklingshyggju (kapítalisma) en vinstrimenn í átt að félagshyggju (sósíalisma).
Margir fjölmiðlar hafa þó um árabil kallað þá heimamenn öfga-hægrimenn sem vilja sem mestar takmarkanir á komu útlendinga til tiltekins lands. Morgunblaðið heldur uppteknum hætti í dag þegar það fjallar um ríkisstjórn íhaldsmanna og svokallaðra öfga-hægrimanna í Austurríki.
Frjálshyggjumenn hafa hingað til talið sig fremur til hægri en vinstri í stjórnmálum af því að þeir eru á móti ofbeldi og telja að afskipti ríkisins af lífi fólks sem vinstrimenn boða sé óverjandi.
Meðal óréttmætra afskipta af frelsi fólks eru hömlur á ferðum fólks á milli landa.
Enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi vill jafn litlar hömlur á komu fólks til landsins og Frjálshyggjufélagið kysi.
Í þessu ljósi væri fróðlegt að vita hvort að Morgunblaðið líti á Frjálshyggjufélagið sem félagsskap öfga-vinstrimanna.
Oddgeir Einarsson kl. 13:34