« Hver er hræddur við Ernst Zundel? | Aðalsíða | Minnislisti hins stjórnlynda »
2. mars 2005
Engin rök
Það eru engin rök að nú standi hitt og þetta alls konar fólki til boða. Dæmi um slíkt er að í Kastljósi kvöldsins kom fram að ef það verði settar fleiri hundruð milljónir í að framleiða gervisnjó og lyftur þá muni skíðabrekkur standa almenningi til boða hugsanlega allan veturinn. Þetta er alveg rétt hjá starfsmannai Bláfjalla. Enginn heldur öðru fram að ef farið væri í þessar framkvæmdir þá yrðu fallegar brekkur opnar allan veturinn.
Það eru hins vegar engin rök.
Það er ekki verjandi að taka fé með valdi af fólki og nota í verkefni af hinu og þessu tagi þó svo að hlutir standi allt í einu sama fólki til boða. Ríkið ákveður ekki hvað sé sniðugt að standi til boða og hvað ekki. Það gera einstaklingarnir og fólkið sjálft. Ef fólk almennt vildi hafa fallegar skíðabrekkur aðgengilegar í Bláfjöllum allt árið um kring þá væri væntanlega lítið mál að fá fólk til að greiða fyrir slíkt.
Ef menn gefa eftir í málum á borð við Bláfjöll og viðurkenna að taka megi fé af fólki með valdi til slíkra framkvæmda hvar ætla menn þá að stoppa? Hvar verður strikið dregið? Mun hér rísa gerviströnd og þar til gerð gervisól sett upp á staur, verður hér útbúin gervieyðimörk og gervipýramídar byggðir, verður settur upp gervifrumskógur með fágætum dýrm?
Þá mætti segja: Almenningur getur nú farið í safaríferðir á hálendinu, hann getur legið í steikjandi sólinni á heimsklassa strönd, skoðað pýramída og ferðast um á fílum eða kameldýrum, farið á kajak niður stórfljót í regnskógi og skoðað fágæt dýr hérlendis.
Allt rétt.
En ekki gild rök fyrir því að taka fé af saklausu fólki.
Því miður.
Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 20:01