« Um fagleg sjónarmið | Aðalsíða | Ráðning fréttastjóra – Er starfsaldur það sama og starfsreynsla? »

10. mars 2005

Biturleika breytt í félag og gripið til aðgerða

Það hlýtur að vera sjaldséð að starfsmenn stofni sérstakt félag og skekki dagskrá fjölmiðils til að mótmæla ráðningu yfirmanns síns. Man einhver eftir því að framleiðsla hafi verði eyðilögð eða framkvæmdum á byggingarsvæðum hætt til að mótmæla nýjum forstjóra, framkvæmdastjóra, verkstjóra eða einhverju slíku? Eða er það kannski þannig að undirmenn ráða engu um ráðningu yfirmanns? Er það hugsanlega einnig svo að stjórn viðkomandi félags, sem er fulltrúi hluthafa í rekstrinum, eigi eðli máls samkvæmt að ákveða hver sé ráðinn yfirmaður og hver ekki?

Því miður er RÚV stofnun og sóunarmaskína (sjá nýjustu afkomutölur RÚV) með enga stjórn. RÚV er stofnun og pólitískt bitbein sem rekur áfram vélarvana og bíður skipbrots. Það eru engir hluthafar í RÚV og því enginn sem lætur sér annt um reksturinn. Meira að segja hollvinsamtök stofnunarinnar hvetja til ríkisreksturs þrátt fyrir að öll gögn tali máli þess að einkavæða og selja stofnunina sem allra fyrst og aðeins þannig verði henni bjargað.

Hvaða stofnun þarf óvini ef hún hefur slíka hollvini.

Að öðru..

Heyrst hefur að tiltekinn veðbanki hafi í morgun opnað fyrir veðmál á hversu oft fólk muni segja ráðningu fréttastjóra á RÚV vera „aðför að lýðræðinu“. En í tilkynningu frá bankanum kemur fram að eitt helsta gífuryrði og tískuorð vinstrimanna sé að kalla allt sem þeir eru ekki fyllilega sammála „aðför að lýðræðinu“.

Niðurstaðan er sú að selja verður RÚV sem allra fyrst svo friður geti skapast um fjölmiðilinn og þessi læti og látalæti geti hætt.

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 14:08