« Sundurliðun skatta í skattframtali | Aðalsíða | Myndbandakvöld »
5. mars 2005
Auðsköpun og umhverfisvernd
Samband efnahagslegs frelsis og auðsköpunar er vel þekkt - þau ríki sem auka efnahagslegt frelsi sitt auka jafnframt auðsköpun íbúa sinna. Þegar fólki er gefinn kostur á að lyfta sér upp úr brýnasta brauðstritinu virðist það einnig byrja hugleiða stjórnmál, umhverfismál og samfélagsmál með öðrum hætti. Lýðræði brýst út í ríkjum sem auka efnahagslegt frelsi sitt, og mannréttindi batna stórum.
Nú er ljóst að umhverfismál eru í bestum farvegi í auðugum ríkjum, hvað sem tautar og raular. Auður gefur kost á fjárfestingum í nýrri og sparneytnari tækni og gerir orkufreka og óhagkvæma tækni úrelta. Aukinn auður gerir fólki kleift að nýta land betur, breyta víðfeðmum ruslahaugum í golfvelli, urða rusl, auka skógrækt og rækta upp land. Myndrænt er þessu samhengi auðsköpunar og umhverfisverndar lýst hér að neðan (smellið á myndina til að fá stærri útgáfu):
Þar sem efnahagslegt frelsi leiðir til auðsköpunar, og auðsköpun leiðir til bættrar umgengni við umhverfið, þá er ekki úr vegi að álykta að efnahagslegt frelsi leiði til bættrar umgengni við umhverfið. Nákvæmlega hvernig sú bætta umgengi birtist er hins vegar önnur saga. Stundum eru reglugerðir samþykktar til að takmarka losun á hinum og þessum efnum sem gjarnan eru þá efni sem dreifast vítt og breytt og óstjórnlega yfir á landsvæði og lífssvæði annarra en þeirra sem losuðu efnin. Hins vegar nægir yfirvöldum yfirleitt að verja einkaeignarréttinn gegn ágengni og átroðningi til að tryggja góða umgengni við umhverfið, og þegar yfirvöld verja einkaeignarréttinn fá þau plús á mælikvarða efnahagslegs frelsis.
Geir Ágústsson kl. 13:00