« Óréttlátt gjald | Aðalsíða | Opið hús félagsins »

16. mars 2005

Alltaf sama vísan og ekkert nýtt?

Það er oft sagt um mig og aðra að við séum ekki að koma með neitt nýtt. Að ég og aðrir frjálshyggjumenn syngjum allir sama sönginn og halda mætti að allt væri það tekið beint upp eftir erlendum frjálshyggjumönnum eða greinum sem þar eru ritaðar. Einnig væri enginn greinamunur á okkur of frjálshyggjumönnum fortíðar sem básúnað hafa sömu skoðanir.

Þetta er allt rétt. En hvers vegna?

Frjálshyggjan er hugsjón og þar af leiðandi ekki hentistefna. Hún fer ekki eftir skoðanakönnunum eða tísku hverju sinni. Hún fer ekki eftir því hvað meirihlutinn telur sniðugt á hverjum tíma og metur í engu vilja stjórnlyndra þingmanna eða annarra embættismanna. Hún byggir á því að hver sé frjáls og hafi frelsi til þess að haga lífi sínu og eignum eins og hann sjálfur kýs svo framarlega sem hann skaðar ekki aðra.

Hefur þetta verið sagt áður? Já.
Hefur þetta verið skrifað í erlendar greinar? Já.
Hefur þessi söngur áður verið sunginn? Já.

Það undirstrikar einmitt hið rétta í málinu. Frjálshyggjan breytist ekki. Frjálshyggjumenn svíkja ekki hugsjónir sínar. Grundvallarhugsjón okkar er enn sú sama og í upphafi. Frelsið. Hún hefur aldrei beðið skipbrot og enn hafa ekki verið færð sannfærandi rök gegn frelsi einstaklingsins. Fólk hefur flúið heimsálfur, stofnað nýlendur, synt með handafli á milli landa o.s.frv. í leit að frelsinu.

Vísur þess fólks sem ekkert hafði annað en líf sitt og von eru þær sömu og mínar. Vísur um að vera látið vera. Vísur um að geta skapað sér og sínum betri dag á morgun en í gær. Vísur sem ekki beygjast fyrir tísku eða skoðunum meirihlutans. Og umfram allt vísur um frelsi og réttlæti.

Vísur sem krefjast hugrekkis.
Vísur sem ekki breytast.

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 00:34