« Opið hús | Aðalsíða | Af fagmennsku R-listans »
21. mars 2005
Af Merði og pulsunni
Á Valentínusardaginn kvaddi Mörður Árnason alþingismaður sér hljóðs á þingi og mælti nokkur orð. Tekið skal fram að undirritaður skildi ekki bofs í eftirfarandi ummælum þingmannsins:
Forseti. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að það er galli í lagaskilgreiningu okkar á eignarrétti að það vantar í hana hugtakið „þjóðareign“. Því þyrftum við að koma í stjórnarskrá eins og ég hef rætt í þinginu áður og ýmsir með mér. Ríkisútvarpið á að mínu mati að vera almannaútvarp og vera því í einhvers konar almannaeign eða þjóðareign. Ég tel að það verði best tryggt með sjálfseignarstofnunarformi í lagalegum tengslum að sjálfsögðu við ríkisvaldið, en ég mótmæli þeim skilningi almennt að það eignarform að öll sú eign sem núna telst til ríkisins sé öll einkaeign ríkisins. [...]. Það er því kominn tími til að við ræðum það [...] hvernig þetta verði hugsað því ég hygg að með betri skilgreiningu á þjóðareign, á eign sem er sum sé þjóðarinnar allrar en ekki ríkisins sem slíks, megi koma í veg fyrir svona fornar hugmyndafræðilegar deilur sem spilla framförum og umræðu í landinu.
Ég gef mér að Mörður Árnason hafi hvorki viljað veita mér né öðrum sem tilheyra þessari þjóð eignarrétt í RÚV og um leið svipta ríkisvaldinu þessum eignarrétti. Reynist forsenda mín röng fagna ég því að Mörður vilji koma RÚV í hendur þjóðarinnar. Ég held að ég selji þá minn hluta og kaupi mér pulsu. Já pulsu.
Oddgeir Einarsson kl. 13:03