« Ný byggðasjónarmið: Að halda Byggðastofnun í rekstri | Aðalsíða | Um fagleg sjónarmið »
8. mars 2005
Af hverju eru hvalveiðar bannaðar?
Í tíufréttunum RÚV í gær var viðtal við mann sem hafði eftir Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra að það „þýddi ekkert að veiða hval ef ekki væri hægt að selja hann.“ Þessi rök gegn því að aflétta banni á hvalveiðum hafa heyrst ítrekað frá stjórnvöldum.
Mikil er ábyrgð þeirra sem nú stunda útflutning á einhverju hér á landi. Ef þeim verður fótaskortur í markaðssetningu og fer að ganga illa má allt eins búast við því að viðkomandi atvinnugrein verði alfarið bönnuð, ef forsætisráðherra er sjálfum sér samkvæmur.
Ég fellst á röksemdir forsætisráðherra. Ég legg svo til að útflutningur á lambakjöti verði bannaður, mönnum gengur nefnilega ekkert að selja það til útlendinga eins og er. Banninu verði svo ekki aflétt nema menn sanni að þeir geti selt það út.
Oddgeir Einarsson kl. 01:05