« Siðað samfélag | Aðalsíða

3. febrúar 2005

Örlátir stjórnmálamenn

Ég fylgdist með Íslensku tónlistarverðlaununum með öðru auganu í gær. Að venju stigu þjóðþekktir einstaklingar á svið og tilkynntu um sigurvegara í hverjum flokki og afhentu verðlaun. Meðal þessara einstaklinga var Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Valgerður fékk skot á sig fyrir að koma frekar með álframleiðslu til landsins í stað þess að styrkja nú rækilega íslenskt tónlistarlíf. Hún sagði að henni þætti bæði gott í bland. Svo sagði hún eitthvað á þessa leið ,,Ég hef nú styrkt íslenskt tónlistarlíf".

Það er vissulega ekki Valgerður Sverrisdóttir sem styrkir íslenskt tónlistarlíf. Hún á þátt í að láta aðra styrkja íslenskt tónlistarlíf, jafnvel fólk sem hefur engan sérstakan áhuga á þessari ágætu tónlist. Og á sama tíma og Valgerður stýrir því hvaða iðnaðargrein hlýtur fjárstuðning frá almenningi, dregur hún úr tekjum sem aðrar greinar hafa. Fjármunirnir sem fara í verkefni Valgerðar hefðu annars farið vítt og breytt um hagkerfið.

En eins og áður getur stjórnmálamaðurinn bent á virkjun, góða tónlist eða risastórt tónlistahús og sagt ,,Sjá, ég styrkti og til varð!"

Það er erfiðara að sjá það sem varð ekki til.

Sævar Guðmundsson kl. 09:08