« „Outsourcing“? | Aðalsíða | Auglýsing Vodafone »
22. febrúar 2005
Af bakþönkum Fréttablaðsins
Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar á baksíðu Fréttablaðsins í dag fyrir hönd þeirra sem hún kallar „hinn þögla meirihluta“. Í greininni er fjallað um afstöðu frjálshyggjumanna til fyrirhugaðs banns við reykingum inni á veitinga- og skemmtistöðum í einkaeigu.
Kristín er einstaklega málefnaleg og nálgast málið með þeim hætti að vega og meta rök frjálshyggjumanna. Í því sambandi uppnefnir hún skoðanaandstæðinga sína ofurlitla heilaþvegna frjálshyggjupostula sem lifi í trúfélögum, byggi lífskoðanir sínar á ritningargreinum og mæti til rökræðna eins og hattífattar Múmínálfanna. Auk þess dregur Kristín þá ályktun að frjálshyggjumenn vilji að fólk hafi rétt til að gera þarfir sínar á götum úti og spyr sig hvort að frjálshyggja sé andfélagsleg hugsun.
Já, þarna náði hún þeim alveg. Geta ekkert sagt. Hah!
Ég verð að viðurkenna að mér þykir talsmaður hins svokallaða þögla meirihluta ekkert sérstaklega þögull, hvað þá orðvar.
Ef við snúum okkur að rökunum gegn reykingarbanni þá eru þau einfaldlega þau að fólk hafi rétt á að stunda hvaða háttsemi, þ. á m. reykingar, nema slík háttsemi skaði aðra. Jafnframt er öllum frjálst að skaða sjálfa sig. Þess vegna eru t.d. hnefaleikar ekki lengur bannaðir. Þeir sem stíga í hringinn vita af áhættunni en taka hana samt. Þeim sem leiðist tónlist á bar geta sleppt því að fara inn þar sem slík tónlist er spiluð. Þeir sem vilja ekki anda að sér reyk fara ekki inn á þá staði þar sem leyft er að reykja.
Talsmaður meirihlutans virðist ekki sjá hversu miklu máli skiptir að enginn er þvingaður inn á reykingarstaði. Það er ekki heldur eins og ríkið hafi einkarétt á skemmtistöðum og ákveði að reykt sé inni á þeim öllum. Þannig getur þessi yfirgnæfandi meirihluti bara sniðgengið þennan vonda minnihluta sem vill spúa eitri um allt. Það er mjög einfalt, þarf bara að setja skilti utan á skemmtistaðinn þar sem tekið er fram að þeim verði vísað á dyr sem reykja.
Mér finnst óviðeigandi að stimpla ofangreind rök sem einhvern heilaþvott. Það skiptir þó engu máli fyrir rökræðuna. Ég hef ekki enn heyrt gagnrök sem hnekkja því sem sagt var hér að ofan.
Í því ljósi tel ég varasamt að álykta sem svo að þeir sem eru andsnúnir ríkjandi viðhorfum séu heilaþvegnir. Það er nefnilega meirihlutinn sem er umkringdur fólki af sömu skoðun og kemst auðveldlega hjá því að rökræða skoðanir sínar og getur þess í stað leyft sér að uppnefna þá sem ekki deila skoðunum hans.
Það mætti e.t.v. spyrja hver sé raunverulega heilaþveginn í þessu máli. Það skiptir þó engu máli fyrir niðurstöðu rökræðunnar.
Oddgeir Einarsson kl. 11:06