« október 2003 | Aðalsíða | febrúar 2004 »

26. nóvember 2003

Ósýnilega höndin 4. tölublað 1. árgangur

Geir Ágústsson fjallar um „Daily Commentary“ dálkinn á heimasíðu Cato-stofnunarinnar.

CATO
Daily Commentary

Heimasíða Cato-stofnunarinnar, www.cato.org, er efnismikill og fræðandi vefur fyrir áhugafólk um frjálslynd sjónarmið. Þar má finna fréttatilkynningar, vefverslun, ítarlegar umfjallanir um helstu baráttumál frjálslyndra manna og margt fleira. Að mati undirritaðs er einn skemmtilegasti hluti heimasíðu Cato-stofnunarinnar hinn svokallaði „Daily Commentary“ dálkur og þar er margra grasa að kenna. Höfundar fara um víðan völl og velta upp ýmsum hugmyndum sem athyglisvert er að skoða.

Almannatryggingar í Bandaríkjunum voru umfjöllunarefni greinar eftir Michael Tanner þann 7. febrúar. Þar segir hann: „Wealth in America no longer comes exclusively -- or even primarily -- from wages, but from investment. Roughly 52 percent of Americans now invest privately. But nearly half of Americans, mostly low- and middle-income workers, still are not able to participate in this route to financial wealth. This is not surprising. After paying for food, rent, medical care, and other expenses of daily living, they simply don’t have much money left over to save and invest.

Yet these same workers are being forced to pay 12.4 percent of their income into Social Security. Social Security may provide a barely adequate retirement income, but it generates no wealth. Workers don’t own their Social Security funds and have no legal right to the benefits. It is, simply, not wealth in the same way as a 401(k) plan, an IRA , or a bank account. The rich, however, have 401(k) plans at work: They have discretionary income with which to invest. They can accumulate greater wealth. The rich get richer; the poor do not.“

Þann 23. apríl birtist skemmtileg hugleiðing um umhverfisvernd og kapítalisma. Þar segir höfundur, Jerry Taylor, svo frá: „Indeed, we wouldn’t even have environmentalists in our midst were it not for capitalism. Environmental amenities, after all, are luxury goods. America -- like much of the Third World today -- had no environmental movement to speak of until living standards rose sufficiently so that we could turn our attention from simply providing for food, shelter, and a reasonable education to higher “quality of life” issues. The richer you are, the more likely you are to be an environmentalist. And people wouldn’t be rich without capitalism.“

Þann 22. september birtist greinin „An Unequal Distribution - of Capitalism“ eftir Johan Norberg. Hann segir: „Critics of capitalism point out that per capita GDP is more than 30 times greater in the world’s 20 richest countries than in the 20 poorest. The critics are right to say that this inequality is due to capitalism -- but not for the reasons they think. The difference is due to certain countries having taken the path of capitalism, resulting in fantastic prosperity for their inhabitants, while those choosing to impede ownership, trade, and production have lagged behind. Factors such as climate and natural disasters are not unimportant, but most of the gap can still be put down to certain countries having opted for liberalization and others for control.“

Einnig: „The world’s inequality is due to capitalism. Not to capitalism making certain groups poor, but to its making its practitioners wealthy. The uneven distribution of wealth in the world is due to the uneven distribution of capitalism.“

Þann 3. nóvember fjallaði Gerald P. O’Driscoll, jr. um málefni Íraks. Hann segir: „In all societies, individuals have conflicts of interest. Private property and competition facilitate the peaceful resolution of such conflicts. Indeed, a system of private property governed by a rule of law sets limits on the permissible form of competition for resources.

In societies without well-protected private property rights in resources, conflicts over resources are resolved by violence and war. By contrast, in a market economy those who want more of a resource purchase it peacefully on the market.“

Höfundur segir svo: „Regardless of one’s opinion on the wisdom of the Iraq war, the U.S. government must now decide on whether to keep the oil sector in state hands, or to privatize it. The Bush administration is terrified of privatization in Iraq and is set to keep oil in state hands. If it does that, then the war will have been for nothing. The source of internal conflict among the principal groupings in Iraq will remain. So internal conflict will result, and a new dictatorship is likely to emerge. The administration will thereby snatch defeat from the jaws of victory in Iraq.“

-

Tilkynning frá stjórn Frjálshyggjufélagsins

Í kjölfar umræðna um kaupréttarsamninga starfsmanna bankastofnana og umræðu um ríkisstyrki til dagblaðaútgáfu að undanförnu vill Frjálshyggjufélagið koma eftirfarandi á framfæri:

Frjálshyggjufélagið telur afar varasamt að setja lög um kjör starfsmanna einkafyrirtækja. Farsælla sé að eigendur fyrirtækjanna ákveði sjálfir kaup og kjör starfsmanna sinna. Ef viðskiptavinir eru ósáttir við framferði stjórnenda fyrirtækja, geta þeir látið skoðun sína í ljós, t.d. með því að fara með viðskipti sín annað. Ennfremur varar Frjálshyggjufélagið við auknu íþyngjandi regluverki varðandi samþykki hluthafafunda við gerð starfssamninga við lykilstarfsmenn. Ef þörf er á slíkum reglum geta fyrirtæki sett sér þær sjálf.

Frjálshyggjufélagið telur að allir ríkisstyrkir til fjölmiðlaútgáfu séu ranglátir. Fjölmiðlafyrirtæki geta keppt um hylli sinna viðskiptavina rétt eins og önnur fyrirtæki þrátt fyrir að nú sé tímabundinn öldudalur í rekstri nokkurra fjölmiðlafyrirtækja.

Heimasíða Frjálshyggjufélagsins er www.frjalshyggja.is.

-

Bureaucrash
Á móti tollamúrum - með frjálsum viðskiptum

„Crashararnir“ í Bureaucrash eru til margs líklegir. Þeir hópast saman þegar mótmæla á hlutum á borð við viðskiptafrelsi í þróunarlöndum og eru fyrstir á staðinn þegar mótmæli gegn stórfyrirtækjum fara fram. Crashararnir eru þó ekki eins og mótmælendurnir eru flestir, þeir mæta til að mótmæla viðskiptaþvingunum og stjórnvaldsaðgerðum, mótmæla mótmælunum.

Bureaucrash er alþjóðleg samtök fólks sem trúa á gildi frjálsra viðskipta. Þau telja að viðskiptahindranir haldi þriðja heiminum fátækum og ófrjálsum. Þeir telja mikilvægt fyrir heiminn allan að fólki sé gert kleift að stunda viðskipti sín á milli án afskipta stjórnvalda. Það stuðli að betra lífi fyrir fátækasta fólk heims og virðingu fyrir mannréttindum þess.

Í stefnu samtakana má til dæmis lesa: „Við trúum því að þegar kerfiskarlar og pólitíkusar hafa völd til að setja gerræðislegar reglur, þá steli þeir vali okkar.
Þar af leiðandi trúum við að ríkisvaldið skuli vera lágmarkað. Það skuli aðeins hafa völd til að verja okkur frá valdi og svikum.“

Bureaucrash er að mörgu leyti mótvægi við samtök vinstrimanna á borð við Adbusters sem standa meðal annars fyrir „Buy Nothing Day“ þar sem fólk er hvatt til að kaupa ekki neitt(!). Slík samtök, sem berjast gegn viðskiptum milli fólks, annaðhvort með kröfum um stjórnvaldsaðgerðir eða með því að hvetja fólk beinlínis til að meina sér um viðskipti, hafa vaxið óheyrilega á síðustu áratugum.

Crashararnir snúa vörn í sókn í baráttu sinni. Nú má sjá þá á öllum helstu samkomum gegn viðskiptum, á fyrirlestrum og fundum andstæðinga alþjóðavæðingar og svo mætti lengi telja.

-

Frelsisskerðing er engin lausn

Óvinir einstaklingsfrelsisins leynast víða þótt fæstir þeirra myndu taka undir þá lýsingu á sér. Flestir þeirra sem tala fyrir frelsisskerðingu gera það nefnilega í þeim tilgangi að gera líf þeirra sem fyrir henni verða betra. Skerðing frelsis, þrátt fyrir að hún sé í nafni umhyggju og góðmennsku, hefur þó oftar en ekki í för með sér eitthvað allt annað en upphaflega var ætlað.

Nýjasta dæmið um þá hugsun að réttlætanlegt sé að skerða einstaklingsfrelsi fólks til að hjálpa því sjálfu er frumvarp um kynlífsþjónustu sem liggur fyrir á Alþingi. Stuðningsmenn þess virðast ekki líta á líkama fólks sem eigu þess sjálfs. Þeir telja það vera skyldu sína að banna fólki þá iðju sem þeir telja hættulega og siðlausa. Slíkur hugsanaháttur hefur því miður töluverðan hljómgrunn því mörg lög eru þegar í gildi sem taka mið af honum.

Þannig getur fullorðinn einstaklingur ekki ráðið því hvort hann neyti ákveðinna efna sem löggjafinn hefur ákveðið að séu honum óholl. Einnig er sjúklingum meinaður aðgangur að lyfjum sem hugsanlega gætu linað þjáningar þeirra vegna vilja löggjafans til að verja þá fyrir hugsanlegu dómgreindarleysi. Og ef flutningsmenn fyrrnefnds frumvarps fá að ráða verður fólki sem stundar vændi gert enn erfiðara fyrir að nota líkama sinn í það sem það sjálft vill nota hann í. Sumir telja þessa frelsisskerðingu réttlætanlega vegna þeirra rauna sem margir vímuefnaneytendur og vændisfólk ganga í gegnum. Þeir gera þá jafnframt ráð fyrir því að bann við þessum hlutum geri líf viðkomandi betra en ella. Skyldi raunin vera sú?

Ekki minnkaði hugsanlegur vandi áfengisneytenda þegar áfengi var bannað í Bandaríkjunum á fyrri hluta síðustu aldar. Í stað þess fengu Bandaríkjamenn drykkinn baneitraðan og sterkari en aldrei fyrr úr brugghúsum „heiðursmanna“ á borð við Al Capone. Þar að auki gerði bannið það að verkum að skipulögð glæpastarfsemi kom undir sig nær óbrjótandi stoðum. Þrátt fyrir vímuefnabann streyma vímuefni til Íslands, sölumenn efnanna hika ekki við að markaðssetja þau til barna og unglinga og varla þarf að taka það fram að ofbeldi er fylgifiskur viðskipta slíkra manna. Ætli vímuefnaneytandinn, sem sprautar sig með eiturblönduðu heróíni vegna viðskipta sinna við glæpamenn, sé betur settur en ef hann ætti aðgang að hættuminni efnum frá ábyrgum aðilum? Og hvað með vændi? Hefur ekki raunin verið sú í Svíþjóð, þar sem sams konar löggjöf er og nú er verið að leggja til að eigi að taka upp hér, að þeir sem átti að vernda með þessu, vændiskonur og –karlar, hafa lent verst úti? Vissulega er vændið ekki eins sýnilegt og áður, en það þrífst sem aldrei fyrr í undirheimunum, er ofbeldisfyllra en áður og vændisfólk á enn erfiðara með að komast út úr vandræðum. Vandinn hverfur svo sannarlega ekki þótt hann sé bannaður. Hann verður áfram til staðar og oft byrja vandræðin ekki fyrir alvöru fyrr en eftir að bann er sett á.

Það er líka eitt sem má alls ekki gleymast í þessari umræðu. Það er nefnilega til fólk sem drekkur áfengi skynsamlega, neytir annarra vímuefna skynsamlega og kýs að stunda vændi. Enginn ætti að hafa rétt til að banna þessu fólki að gera slíkt þótt aðrir kunni að gera þetta óskynsamlega eða af öðrum ástæðum. Það eru grundvallarréttindi hvers einstaklings að hann hafi fullan eignarrétt yfir eigin líkama. Þegar fólk segir að mannslíkaminn sé ekki markaðsvara hefur hann rétt á þeirri skoðun sinni en engan rétt til að fara fram á að gera þá skoðun sína að lögum. Eigendur líkama sinna eiga að hafa rétt á að líta á líkama sína sem markaðsvöru og eiga að hafa rétt á að ráðstafa líkömum sínum eftir því. Þegar einstaklingur hefur ekki ráðsstöfunarrétt yfir eigin líkama er hann þræll þess sem fer með þann rétt. Þá skiptir engu máli hvort siðgæði þrælahaldarans er á háu eða lágu stigi.

Árni Ólafsson
- arnola@simnet.is

-

Ritstjórnarspjall

Okkur er vandi á höndum í þessu þjóðfélagi og er hann mikill. Á fjölmörgum vígstöðvum er verið að eða verið að reyna að minnka frelsi okkar til orða og athafna. Ekki má tala vel um tóbak opinberlega. Ekki má greiða starfsmönnum of há laun. Fullfrískir og sjálfráða einstaklingar mega ekki ráðstafa líkömum sínum. Peningar eru fluttir úr einum vasa í annan eftir höfði embættismanna. Þetta má ekki viðgangast. Þetta er óréttlæti.

Við þurfum að berjast fyrir frelsinu. Sú barátta er nú varnarbarátta en henni þarf að snúa í sókn. Eftir því sem fleiri staðlar eru settir á mannlega breytni því verr erum við stödd. Fjölbreytileiki einstaklinga er virtur að vettugi í nafni siðgæðis, góðra gilda og smekks meirihlutans. Hve lengi getum við umborið það? Höfum við ekki öll rétt til að haga lífi okkar að eigin smekk? Erum við vitleysingar? Hver gefur fulltrúum ríkisvaldsins vald til að skipta sér af ákvörðunum okkar? Kjörnir fulltrúar eiga að setja sanngjarnar leikreglur fyrir samfélagið en ekki nákvæmar reglur um rétta breytni og ranga.

Í stað þess að verja einstaklinga gegn ofbeldi beitir ríkisvaldið þá oft á tímum ofbeldi. Ofbeldi er óréttlátt. Frelsi er réttlátt. Berjumst fyrir frelsinu. Það er leiðin til aukinna lífsgæða.

Með frelsiskveðju, Geir Ágústsson.

-

Útgefandi:
Frjálshyggjufélagið
Fjarðarseli 30
109 Reykjavík
frjalshyggja@frjalshyggja.is

www.frjalshyggja.is

Ritstjóri & ábyrgðarm.:
Sævar Guðmundsson
- saevar@frjalshyggja.is

Ritstjórn:
Friðbjörn Orri Ketilsson
- orri@frjalshyggja.is
Geir Ágústsson
- geirag@hi.is

Sævar Guðmundsson kl. 00:00

14. nóvember 2003

Ósýnilega höndin 3. tölublað 1. árgangur

Byggðaþróun í krafti frelsis

Byggðaþróun er mörgum hugleikin, enda hefur hún víðtæk áhrif á samfélag okkar. Byggðir stækka og minnka í sífellu og ástæður þess geta verið margs konar. Fólk getur verið að skipta um vinnu, byrja í skóla, sækja í fjölmennara mannlíf, komast nær náttúrunni, setjast í helgan stein og svona mætti lengi telja. Allir þessir búferlaflutningar eiga sér ástæður og drifkrafturinn er ákvarðanir einstaklinga og fyrirtækja sem öll leita í umhverfi og starfsskilyrði sem henta hverjum fyrir sig.

Gegn þessu frjálsa flæði fólks og fyrirtækja vilja ýmsir sporna. Mörgum þykir sárt að sjá mikla fólksfækkun í byggðarlagi sínu og vilja sporna gegn henni með ýmsum leiðum. Um það er allt gott að segja og ýmislegt er hægt að gera til að tryggja áframhaldandi búsetu íbúa og öflugt atvinnu- og mannlíf á hverjum stað. Hættan er samt sú að fólk freistist til að beita ríkisvaldinu. Þá er voðinn vís.

Skaðleg áhrif af inngripum ríkisins í þróun byggða eru margvísleg og óréttlætið sem í þeim felst er mikið. Með því að veita sumum byggðum beina styrki eða niðurgreidd lán á kostnað allra skattgreiðenda er byggðum mismunað. Þær byggðir sem ekki njóta styrkja eru í samkeppni um vinnuafl við þær sem njóta styrkja. Með því að skekkja þessa samkeppni viðheldur ríkið stöðnun og fátækt í byggðarlögum þar sem allur grundvöllur búsetu er e.t.v. fyrir löngu horfinn. Þegar kemur að skuldadögum er innistæðan oft lítil. Eðlileg þróun mun eiga sér stað með flutningi fólks og fyrirtækja og inngrip ríkisins í hana mun einungis valda meiri og harkalegri röskun á lífi fólks en ella hefði orðið.

Nú gæti einhverjum dottið í hug að ríkið þyrfti að styðja við bakið á byggðarlögum sem misstu skyndilega stærsta vinnustaðinn frá sér, t.d. vegna gjaldþrots eða tilflutnings aflaheimilda. Svo er ekki. Verði eðlileg byggðaþróun leyfð verður aðlögun í takt við aðstæður, en ekki í takt við vilja tiltekinna stjórnmálamanna. Byggðir munu stækka og minnka í samræmi við framboð og eftirspurn á húsnæði og vinnuafli á hagstæðum kjörum.

Ríkið getur ekki vegið og metið hvar vinnuafli er best fyrirkomið. Þetta hafa Ráðstjórnarríkin kennt okkur. Sveitafélög eru ekki ólík fyrirtækjum að því leyti að þau þurfa að keppa um íbúa, eins og fyrirtækin keppa um starfsmenn. Frelsi er þeirra sterkasta vopn í því. Ríkið á ekki að trufla þessa samkeppni, heldur frekar einbeita sér að því að finna leiðir til að gefa sveitarfélögum sem mest frelsi frá hinu opinbera, m.a. með því að fækka stórlega þeim lagalegu kvöðum sem sveitarfélögum eru settar. Afnám laga um lágmarksútsvar er augljós uppástunga í því samhengi. Fólk ákveður sjálft hvaða kröfur það gerir, í hvers konar samfélagi það vill búa og hvaða þjónustu það vill hafa aðgang að. Sveitarfélög munu átta sig á þessu og haga seglum eftir vindi.

Byggðastyrkir og niðurgreidd lán til starfsemi sem einkareknar lánastofnanir vilja ekki lána til gera meira ógagn en gagn. Oft og tíðum renna opinber framlög af þessu tagi til reksturs sem ekki á sér miklar framtíðarvonir, en er styrktur í nafni byggðastefnu. Störf eru sköpuð sem standa og falla með opinberum stuðningi og þannig er grafið undan annarri starfsemi sem keppir við þá niðurgreiddu um vinnuaflið. Skaðinn breiðist út og hefur neikvæð áhrif langt út fyrir þá byggð sem ætlunin var að styrkja. Með því að minnka ríkisafskiptin og auka frelsið leita starfskraftar fólks þangað sem þeirra er þörf. Með því að auka frelsi byggðarlaga til að koma til móts við íbúa sína er líklegra að einstaklingsframtakið leiði til varanlegra lausna, því frelsi tryggir sköpun, og sköpun tryggir byggð.

Á a.m.k. enn einn hátt birtist óréttlæti opinberrar byggðastefnu í því að ríkið situr báðum megin borðsins. Framboði og eftirspurn á vinnuafli verður ekki stjórnað með opinberum aðgerðum svo vel fari. Hins vegar er erfitt að standa gegn hinu opinbera þegar það skilgreinir hve margir skuli búa á ákveðnu svæði og knýr fram hvað sem það telur þurfa svo markmiðið náist. Með því að vera með fingurna svona í samkeppni byggða um fólk er samkeppnisstaða þeirra skekkt og þar með allur grundvöllur til að ákvarða rétt laun fyrir rétt störf hjá réttu fyrirtæki á réttum stað. Ríkið getur ekki ákveðið framboð og eftirspurn á sama hátt og markaðurinn, hvort sem það er á norðlensku lambakjöti, skyri eða vinnuafli.

Að öllu þessu sögðu má fullljóst vera hvers vegna ríkið á að láta alveg af hvers kyns ígripum í byggðaþróun á landinu. Ríkið myndar hvorki samfélagið né hagkerfið. Það gera einstaklingar og fyrirtæki. Ríkið á að vernda frelsi manna og eigur og seilist langt út fyrir eðlilegt valdsvið sitt þegar það reynir að blása lífi í kulnaðan bálköst, skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja eftir staðsetningu og setja skattpeninga í dauðadæmdan rekstur í nafni byggðastefnu. Höfnum ríkisafskiptum og veljum frelsi. Frelsi er eina varanlega lausnin í þróun byggða og búsetu á landinu.

Geir Ágústsson
- geirag@hi.is

-

LibertariaNZ

Stephen Berry er varaformaður nýsjálenska frjálshyggjuflokksins Libertarianz. Hann talar til íslenskra frjálshyggjumanna um hreyfinguna í heiminum, einkenni hennar og sérstöðu.

Fyrst vil ég lýsa yfir ánægju minni með að sjá frjálshyggjuflokk verða til í enn einu landinu. Það virðist vera mikil gróska í þessum málum, og það er mjög hvetjandi.

Ég gekk ekki til liðs við flokkinn fyrr en nokkrum árum eftir en hann var stofnaður. Nánar tiltekið í ágúst 2002, eftir ævilanga trú á að ríkið ætti að leysa vandamál fólks. Stjórnmál verða oft mjög skemmtileg og því tók ég að mér hlutverk talsmanns flokksins í fjármálum nokkrum mánuðum síðar. Fyrir tveimur mánuðum var ég ráðinn í fullt starf hjá flokknum og er varaformaður hans.

Ég tel ástæðu þess að frjálshyggjuflokkar eru svo fáir sem raun ber vitni vera að það er aðeins takmarkaður fjöldi fólks í hverju landi sem trúir á gildi einkaeignarréttar einstaklinga og takmarkaðs hlutverks ríkisvaldsins. Þessi ótrúlega hjarðhugsun, sem gengur út á að ríkisvaldið sjái um hvern anga mannlífsins, hefur ekki fyrr en núna nýlega farið að missa trúverðugleika.

Bandaríkin, að því er ég best veit, voru fyrsta landið til að eignast raunverulegan frjálshyggjuflokk, en útbreiðslu hugmyndanna má eflaust rekja til internetsins. Ég efast um að frjálshyggjan væri eins útbreidd og nú ef ekki væri fyrir nútímatækni. Nú erum við að sjá stofnun frjálshyggjuflokka í löndum eins og Frakklandi og Bangladesh. Frjálshyggjuhreyfingin í Costa Rica hefur til dæmis notið töluverðrar velgengni, nú með 10% þingsæta í heimalandi sínu.

Frjálshyggjan er lík íhaldsstefnunni þegar kemur að efnahagsmálum, nema að því leyti að við göngum jafnvel lengra. Íhaldsmenn eru fylgjandi lágum sköttum, takmörkuðum ríkisafskiptum og svo framvegis, á meðan frjálshyggjumenn boða afnám skatta (enda eru þeir ofbeldi) og ríkisafskipta (reglur lágmarksríkisins). Í málum sem snúa að einstaklingsfrelsi eru frjálshyggjumenn algerlega á öndverðum meiði við íhaldsmenn. Á meðan íhaldsmaður telur skyldu sína að lögleiða eigið siðferði (t.d. að banna vændi og vímuefni), segir frjálshyggjumaðurinn: „Þitt líf – þín ákvörðun. Ef þú beitir aðra ekki valdi eða blekkingum, kemur þetta engum við.“

Frjálshyggjan er ólík öllum öðrum stefnum á sama hátt. Hún er eina hugmyndafræðin sem styður eign manna á eigin lífi. Einstaklingurinn á sig sjálfan, sinn eigin líkama, eignir sínar og hefur óskoraðan rétt til að nýta á þann veg sem samviska hans leyfir – með því skilyrði að hann taki ábyrgð á eigin gjörðum, líkt og beitingu ofbeldis eða blekkinga. Hver einasta stjórnmálastefna er ólík frjálshyggjunni að því leyti að í þeim felst að ríkisvaldið beiti einstaklingana nauðung, hvort sem er í efnahagsmálum (líkt og sósíalistar) eða með takmörkun einstaklingsfrelsis (líkt og íhaldsmenn).

Þú hefur eflaust heyrt um hægri/vinstri kvarðann í stjórnmálum. Vinstrimenn eru að takmörkuðu leyti fylgjandi frelsi í siðferðismálum, en stjórnlyndir í efnahagsmálum. Hægrimenn eru frekar stjórnlyndir þegar kemur að siðferði einstaklingsins, en frjálslyndir þegar kemur að efnahagsmálum. Frjálshyggjan passar ekki inn í þennan kvarða á nokkurn hátt, enda erum við frjálslynd bæði þegar kemur að einstaklingsfrelsi og efnahagslegu frelsi.

Ég vil hrósa íslensku baráttufólki frelsis fyrir að taka frumkvæði í málefnum einstaklingsfrelsis. Það er mjög hughreystandi að heyra um einstaklinga í öðrum löndum sem véfengja kreddur um að ríkisvaldið hafi rétt á að stjórna lífi okkar. Tveir þumlar upp og bestu óskir í baráttu ykkar, en verið viss um að hún verður erfið. Lykillinn að árangri í baráttu er að halda henni til streitu og gleyma aldrei að berjumst fyrir réttlæti, þótt margir reyni að réttlæta að lifa af fjármunum annarra gegnum ríkisvaldið.

Kveðja,
Stephen Berry
varaformaður, Libertarianz
www.libertarianz.org.nz

-

Markaðsvæðum auðlindirnar

Þeir sem kenna sig við félagshyggju eiga það gjarnan sameiginlegt að nota hugtök hægrimanna í orði, en á borði býr oft lítið annað en gamli sósíalisminn að baki. Dæmi um þetta eru hugmyndir vinstri manna um að „markaðsvæða“ sjávarútveginn með því að ríkið geri aflaheimildir fyrirtækja upptækar. Tillaga um slíka þjóðnýtingu hefur ekki sést lengi hér á landi. Fyrirtækjum, einnig þeim sem hafa keypt aflaheimildir fullu verði á markaði, yrði gert að skila þessum heimildum og kaupa aftur af ríkisvaldinu. Hver skynsamur maður sér að þetta er langt frá því að vera markaðsvæðing.

Fyrirtæki, sem nú starfa í sjávarútvegi, hafa fjárfest í framleiðslutækjum, byggt upp aðstöðu og þekkingu til að sækja sjóinn og afla fiskjar. Þau tóku áhættu í rekstri, ýmsir töpuðu, sérstaklega íslenska þjóðin með sífelldum gengisfellingum, og þeir, sem best voru fallnir til þessa rekstrar, lifðu af. Með stöðugri hagræðingu tókst þeim að nýta auðlindina á hagkvæman hátt. Liður í þessari hagræðingu var að selja og kaupa kvóta á markaði. Sá sem nýtir aflaheimildir vel kaupir þær á meðan sá sem nýtir þær illa hagnast meira á því að selja þær. Auðlind eins og fiskimið er ekki verðmæt nema til sé þekking, tækni og fjármagn til að nýta hana. Að gera heimildir fyrirtækja upptækar er þjóðnýting, ekki markaðsvæðing.

Bjarnargreiði stjórnmálamanna

Rauði þráðurinn, í gegnum allar þessar tillögur, er að færa eigi þjóðinni aftur auðlindina. Þessum rökum er beitt til að vinna tillögunum fylgis og þá á ódýran hátt. Stjórnmálamenn ganga oft um og lofa fólki gulli og grænum skógum ef það styður tillögur þeirra. En þetta er loforð um bjarnargreiða, svokallað bjarnarloforð.

Mikill meirihluti aflaheimilda hefur gengið kaupum og sölum og mest af kvótanum er á landsbyggðinni. Þessi tilhögun kæmi verst niður á landsbyggðinni og þeim sem hafa verið duglegir að fóta sig í áhættusömum rekstri, þar sem misvitrir stjórnmálamenn hafa ruggað bátnum með óábyrgum málflutningi. En Íslendingar mega ekki láta blekkjast af slíku tali. Meðan sjávarútvegur kostaði þjóðina mikið vegna ríkisstyrkja, vondrar gengisstefnu og annarrar handstýringar gerði enginn kröfu um að njóta arðs af auðlindinni og nú hlýtur fólk að skilja að velgengni eins þarf ekki að þýða tap annars.

Röng skilaboð

Það er grundvallarforsenda fyrir arðbærum rekstri fyrirtækja að hvati sé í hagkerfinutil að taka áhættu, leita nýrra og betri leiða svo hægt verði að finna hagkvæmari aðferðir við að nýta miðin. Það hefur tekist með þrotlausri vinnu einstaklinga, sem skilar sér í auknum arði til sjávarútvegsfyrirtækja. Íslendingar njóta sterkrar stöðu sjávarútvegsins.
Með tillögum stjórnmálamanna um að gera aflaheimildir upptækar eru okkur send þau skilaboð að ef við sýnum frumkvæði, tökum áhættu og öflum okkur þekkingar, sem skilar arði, megi búast við því að ríkisvaldið geri stóran hluta hagnaðarins upptækan. Megum við þá ekki gera ráð fyrir því að landspildur bænda, sem þeir hafa keypt nýtingarréttinn á, aflað sér þekkingar til ræktunar á korni eða nautgripum og reki bú með ágætis hagnaði, verði gerðar upptækar af ríkisvaldinu, eignarréttur þeirra afnuminn og þeim gert að kaupa spildurnar aftur?

Eignarréttur skilgreindur

Það er kominn tími til að athafnamenn í sjávarútvegi þurfi ekki lengur að hafa áhyggjur af lýðskrumi stjórnmálamanna og þeim verði tryggður öruggur rekstrargrundvöllur. Aðeins þannig geta þeir byggt upp öflug sjávarútvegsfyrirtæki um allt land og skipulagt fjárfestingar og rekstur til langs tíma. Skilgreina þarf eignarréttinn á aflaheimildum enn betur, þannig að þær lúti sömu lögmálum og aðrar eignir manna. Aflaheimildir fyrirtækja þurfa því að vera sérnýttar, framseljanlegar og óumdeildar, þannig að hægt sé að versla með þær á frjálsum markaði. Eftir það er hægt að segja að sjávarútvegur Íslendinga sé markaðsvæddur – ekki þjóðnýttur.

Björgvin Guðmundsson
- bjorgvin@draumsyn.com

-

Útgefandi:
Frjálshyggjufélagið
Fjarðarseli 30
109 Reykjavík
frjalshyggja@frjalshyggja.is

www.frjalshyggja.is

Ritstjóri & ábyrgðarm.:
Sævar Guðmundsson
- saevar@frjalshyggja.is

Ritstjórn:
Friðbjörn Orri Ketilsson
- orri@frjalshyggja.is
Geir Ágústsson
- geirag@hi.is

Sævar Guðmundsson kl. 00:00